Il Pedofilo
30.5.2009 | 13:32
Það er ausðéð að frjálshyggjan er gengin töluvert of langt á Ítalíu.
Ég hef ekki verið mikill aðdáandi Berlusconis og nú er alls ekki tími fyrir til að gerast slíkur.
Að mínu mati er þetta niðurlæging fyrir skattgreiðendur Ítalíu.
Við verðum að gera okkur grein fyrir því að fólk allstaðar í heiminum ýtist frá stjórnmálum og hættir að hafa áhrif á samfélag sitt, og að mínu mati er það vegna þess að fólkið veit að stjónmál eru spillt , fólkið veit að stjórnmál hafa þróast í viðskipti og upprunalegur tilgangur ríkisstjórnar og alþingis er glataður.
Almennir borgarar eru meðvitaðir um spillingu í sinni stjórnsýslu, og þá er kominn tími á annarskonar vinnubrögð. Það er ekki hægt að taka á nýju og erfiðu efnahagsumhverfi með gömlum vinnubrögðum og því er það undir ábyrgð stjórnmála manna að endurnýja og mæta kröfunum.
Með þessum vinnubrögðum Berlusconis sé ég enga endurnýjun og hreint sé ég ekki hvernig hann ætlar að taka á vanda Ítalíu.
Berlusconi á að fara í meðferð, og leyfa hæfum manni að taka við af sér.
|
Reynir að stöðva myndbirtingar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.